Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Útboðsauglýsingar

01.07.2010

Rammasamningur um kaup á rekstrarvörum fyrir prentara, ljósritunarvélar og faxtæki EES útboð 12458

F.h.Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

Rammasamning um kaup á rekstrarvörum fyrir prentara, ljósritunarvélar og faxtæki, EES útboð nr. 12458.

Óskað er eftir tilboðum í rekstrarvörur fyrir prentara, ljósritunarvélar og faxtæki s.s tóner, dufthylki, tromlur og aðra fylgihluti sem notast við daglegan rekstur þessara tækja.Óskað er eftir verðum í upprunavöru (OEM), merkta framleiðanda annarsvegar og verðum fyrir samhæfða rekstrarvöru hinsvegar.

Fyrir plottera og þá prentara sem nota stærð A3 skal einungis bjóða upprunavöru (OEM) til sölu sem er merkt framleiðanda tækisins.

Útboðsgögn, á geisladiski, fást afhent milli kl. 8:30 – 16:00 frá og með mánudegingum í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.

Opnun tilboða: Mánudaginn 9. ágúst 2010, kl 14:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur.

12458