Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Útboðsauglýsingar

23.07.2010

Lækjargata 2010, forgangur strætó

F.h. Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið

Lækjargata 2010 – forgangur Strætó.

Um er að ræða gerð forgangsreina fyrir Strætó í Lækjargötu þar sem malbik verður fræst og forgangsreinar síðan lagðar rauðu malbiki. Útskotum við biðstöðvar á móts við Lækjartorg og Amtamannsstíg verður lokað.  Þar verður kantsteinn færður að akbraut, niðurföll færð og svæði hellulögð. Snjóbræðsla verður lögð þar sem útskot er nú við Lækjartorg. Færa þarf umferðaljósastaur við Hafnarstræti og leggja ídráttarrör og draga í streng á milli tengibrunna og stjórnkassa umferðarljósa við Geirsgötu og Hafnarstræti.  Verktaki annast auk þess allar yfirborðsmerkingar og skiltanir.

Helstu magntölur eru áætlaðar:

Malbik rautt

850 m2

Hellu- og steinlagnir

360 m2

Snjóbræðsla

160 m2

Grásteinskantur, lögn

85 m

Lokaskiladagur verksins er 20. september 2010.

Útboðsgögn á geisladiski fást milli kl. 8:30 og 16:00 frá og með mánudeginum 26. júlí 2010 í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík.

Opnun tilboða: Föstudaginn 6. ágúst 2010 kl. 10:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12481