Útboðsauglýsingar
21.10.2011
Íþróttahús Seljaskóla, útdraganlegir áhorfendabekkir
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar,er óskað eftir tilboðum í verkið:
Íþróttahús Seljaskóla, útdraganlegir áhorfendabekkir.
Verkefnið er að útvega og setja upp útdraganlega áhorfendapalla í Íþróttahúsi Seljaskóla.
Um er að ræða tvær jafnstórar pallaeiningar ( telescopic seating). Grunnflötur fyrir hvora einingu er 17,5 x 6,3 m og skulu handrið vera innan þessa marka. Hæð á aftasta palli má vera allt að 2,4 m
Kaupandi sér um að taka niður núverandi stúku og annan búnað sem fyrir er ásamt því að leggja stofnlagnir að stjórnbúnaði fyrir stýringu á pöllum.
Útboðsgögn á geisladisk verða seld á 3.000 kr., frá kl. 9:00 þriðjudaginn 25. október 2011 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1. hæð.
Opnun tilboða: Fimmtudaginn 10. nóvember 2011 kl. 10:00, í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver.
12622