Pósthússtrætisreitur 1.140.5
Póshússtrætisreitur, 1.140.5
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi reits 1.140.5, Kvosin vegna Pósthússtrætisreits.Tillagan byggir á niðurstöðu úr samkeppni “Hugmyndaleit í Kvos” frá ágúst 2007 sem efnt var til í kjölfar bruna í Austurstræti/Lækjargötu. Leitast er við að efla sérkenni svæðisins sem felst í margbreytileika húsa af ólíkri gerð. Jafnframt er tillaga í samræmi við markmið Þróunaráætlun miðborgar um að taka fullt tillit til varðveislu götumynda og húsa.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Skoða tillögu (pdf)
Nánari skýringar (pdf)
Skýringarmyndir og þrívíddarmyndir (pdf)
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 30. apríl 2007 til og með 11. júní 2008. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 11. júní 2008.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.