Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hólmsheiði, aðstaða fyrir fisflug

Hólmsheiði,aðstaða fyrir fisflug

Tillaga að deiliskipulagi á Hólmsheiði vegna tímabundinnar aðstöðu fyrir Fisfélag Reykjavíkur. Í tillögunni er gert ráð fyrir tímabundinni afmörkun svæðis fyrir starfsemi Fisfélags Reykjavíkur, sunnan við Langavatn. Um er að ræða þrískipt svæði,flugbrautir og æfingaaðstaða fyrir vélknúin fis, svæði fyrir bílastæði og flugskýli og svæði fyrir félagsheimili og útivist.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna

Deiliskipulagstillagan (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 8. maí 2009 til og með 6.júlí 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.  

Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 6. júlí 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.

Skipulagsstjóri Reykjavíkur