Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hólmsheiði - losun á jarðveg

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hólmsheiði vegna tímabundinnar aðstöðu fyrir losun á ómenguðum jarðvegi. Í breytingunni felst að jarðvegstippur er stækkaður til suður við hitaveitutanka á Hólmsheiði. Aðkoma verður um tengibraut frá Reynisvatnsvegi að Langavatni og bráðabirgðavegi frá Langavatni að jarðvegstipp.

Með úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 24. júlí 2008, var samhljóða deiliskipulag fellt úr gildi þar sem nefndin taldi að deiliskipulagið samræmdist ekki að fullu ákvæðum svæðis- og aðalskipulags. Með vísan til niðurstöðunnar hefur Reykjavíkurborg, í samráði við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, látið gera tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og Aðalskipulagi Reykjavíkur í samræmi við niðurstöðuna og birtast auglýsingar um þær breytingar samhliða auglýsingu þessari.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna

Deiliskipulagsbreyting (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 8. maí 2009 til og með 6.júlí 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.  

Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 6. júlí 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.

Skipulagsstjóri Reykjavíkur