Hólmsheiði -tímabundin losun ómengaðs jarðvegs
Í kafla 3.1.9. bætist við eftirfarandi setning (feitletruð): “...Á opnum svæðum til sérstakra nota má gera ráð fyrir veitumannvirkjum, s.s. dælu-, fráveitu– og spennustöðvum, sem afmörkuð verða í deiliskipulagi viðkomandi svæða. Enn fremur er heimilt að losa ómengaðan jarðveg á afmörkuðum svæðum. Gera skal grein fyrir umfangi losunar, skilmálum og frágangi svæða í deiliskipulagi.”Í kafla 3.1.9.3. bætist við eftirfarandi setning í lok kaflans (feitletruð): “Innan græna trefilsins er heimilt að losa ómengaðan jarðveg á afmörkuðum svæðum, enda samræmast jarðvegsfyllingar markmiðum útivistar, uppgræðslu og skógræktar á svæðinu. Gera skal grein fyrir umfangi losunar, skilmálum og frágangi svæða í deiliskipulagi”Við kafla 3.2. bætist við nýr kafli 3.2.3. Landnotkun í Hólmsheiði 2001-2024 og skýringarmynd, 9. mynd. Eftirfarandi texti verður í kaflanum: Hólmsheiðin er skilgreind sem opið svæði til sérstakra nota. Markmið aðalskipulagsins er að byggja svæðið upp sem útivistarsvæði, m.a. með skógrækt (S). Á afmörkuðu svæði á Hólmsheiði er heimiluð losun ómengaðs jarðvegs (L, sjá 9. mynd). Gert er ráð fyrir að jarðvegsfyllingin verði mótuð og ræktuð upp á skipulagstímabilinu með þarfir útivistar að leiðarljósi.
Nánar um tillögu vísast til kynningargagna
Aðalskipulagsbreytingin (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 8. maí 2009 til og með 6.júlí 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 22. júní 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Skipulagsstjóri Reykjavíkur