Græni trefillinn - breytt skilgreining
Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær og Mosfellsbær auglýsa, skv. 2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br., tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024.
Tillagan felur í sér breytingar á skilgreiningu varðandi græna trefilinn sem settar eru fram í greinargerð svæðiskipulagsins á bls. 59-61. Tilgangur breytinganna er að einfalda orðalag og undirstrika að frekari útfærsla stefnumörkunar og nánari skilgreining landnotkunar innan trefilsins sé í höndum sveitarfélagana og sett fram í viðkomandi aðal-og deiliskipulagsáætlunum.
Einnig er bætt inn nýrri setningu varðandi heimild um tímabundan losun ómengaðs jarðvegs á svæðinu, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Tillagan felur ekki í sér breytingar á meginmarkmiðum um græna trefilinn né breytingar á landfræðilegri afmörkun hans.
Yfirvöld viðkomandi sveitarfélaga bæta það tjón sem einstakir aðilar kunna að verða fyrir við breytinguna.
Tillagan hefur verið kynnt öllum sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu. Tillagan verður send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu.
Þeim sem óska nánari upplýsinga um tillöguna geta snúið sér til skrifstofu Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14.
Skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar
Skipulagsstjóri Kópavogsbæjar
Skipulagsstjóri Hafnarfjarðarbæjar
Skipulagsstjóri Garðarbæjar
Skipulagsstjóri Mosfellsbæjar