Bergstaðastræti 16-20,Spítalastígur 6b
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Reykjavík.
Bergstaðastræti 16-20, Spítalastígur 6b.
ATH: athugsemdafrestur framlengdur til 28.október 2009.
Breytingartillagan felur í sér að breyta notkun húsnæðisins frá því að vera íbúðarhúsnæði í að vera hótelíbúðir á Bergstaðastrætisreits vegna lóðanna nr. 16,18 og 20 við Bergstaðastræti og lóðarinnar nr. 6B við Spítalastíg.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Deiliskipulagstillagan (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 26. júní 2009 til og með 28.október. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is , til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 28.október 2009.
Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 23. júní 2009 Skipulagsstjóri Reykjavíkur