Háskóli Íslands-sunnan Brynjólfsgötu
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð Háskóla Íslands sunnan Brynjólfsgötu. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni og fjölgun bílastæða eins og sýnt er á reitum A, B og C á uppdrætti. Byggingareitir ofan og neðanjarðar eru stækkaðir, gert ráð fyrir bílakjallara, heimiluð hækkun húsa úr tveimur hæðum í þrjár og stækkun á húsnæði endurmenntunar HÍ.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Deiliskipulagstillagan (PDF)
Skýringaruppdráttur (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 26. ágúst 2009 til og með 7. október 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 7. október 2009.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.