Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Lokastígsreitir

Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Reykjavík.

Lokastígsreitir

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Lokastígsreiti, reiti 1.181.2, sem afmarkast af Lokastíg, Týsgötu. Skólavörðustíg og Baldursgötu reit 1.182.3, sem afmarkast af Lokastíg, Njarðargötu, Þórsgötu og Baldursgötu og reit 1.182.4 sem afmarkast af Lokastíg, Baldursgötu, Skólavörðustíg og Baldursgötu.

Í tillögunni felst m.a. að heimilt verði að hækka og stækka nokkur hús, byggja nýbyggingu á lóðinni að Skólavörðustíg 40 og stærri viðbyggingar við Baldursgötu 39, Njarðargötu 61 og Skólavörðustíg 22a. Almennt verður heimilað að byggja kvisti á risþök, litlar viðbyggingar, svalir og litlar geymslur/gróðurhús á baklóðum samkvæmt nánari skilmálum sem fram koma á uppdráttum. Einnig er lagt til að byggðamynstur á reitnum njóti verndar og að húsin að Þórsgötu 17 og 19 ásamt Skólavörðustíg 28 og 30 njóti verndar 20. aldarbyggina. Lögð er til friðun að Skólavörðustíg 22 og 38.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Reitur 2

Reitur 3

Reitur 4

Greinargerð og skilmálar

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá7. september 2009 til og með19. október 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is.Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 19. október 2009.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

Reykjavík, 2. september 2009Skipulagsstjóri Reykjavíkur