Hólmsheiði, nýtt athafnasvæði
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Hólmsheiði, nýtt athafnasvæði merkt A3 á Aðalskipulagi. Svæðið er staðsett norðan Suðurlandsvegar á milli Hafravatnsvegar og hesthúsasvæðis í Almannadal. Megin markmið tillögunnar eru fjölbreytt framboð lóða með góðum tengingum við megin umferðarkerfi ásamt því að fella byggðina vel að náttúrlegum aðstæðum. Heildarstærð svæðisins er 132 ha og þar af eru u.þ.b. 69 lóðir af ýmsum stærðum allt frá 0,1 ha upp í 10 ha, flestar eru lóðirnar 0,1 – 0,5 ha. Jafnframt eru til kynningar greinargerð skilmála svæðisins og umhverfisskýrsla.
Auglýsing varðandi sama svæði frá 2007 fellur úr gildi við auglýsingu þessa
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu (PDF)
Skýringaruppdráttur (PDF)
Skilmálar (PDF)
Umhverfisskýrsla (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 4. nóvember 2009 til og með 16. desember 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. ATH: röng dagsetning birtist með upprunalegri auglýsingu, nú endurbirt með réttri dagsetningu.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is , til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 16. desember 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Skipulagsstjóri Reykjavíkur.