Egilsgata 3
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar að Egilsgötu 3. Í breytingunni felst að byggð verður þriggja hæða viðbygging norðvestan við núverandi hús Domus Medica ásamt bílgeymslu á tveimur hæðum.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Deiliskipulagstillagan (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 4. nóvember 2009 til og með 16. desember 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. ATH: röng dagsetning birtist með upprunalegri auglýsingu, nú endurbirt með réttri dagsetningu.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is , til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 16. desember 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Skipulagsstjóri Reykjavíkur.