Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skipasund 18

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 30. október 2009 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Sunda vegna lóðarinnar nr. 18 við Skipasund . Í breytingunni felst breyting á byggingarreit samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti ARKÓ dags. 20. október 2009.

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum  gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Efstasundi 17, 19 og 21 ásamt Skipasundi 15, 16, 19 og 20.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Deiliskipulagstillagan (PDF)

Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulags- og byggingarsviði, verefnisstjóri er Gunnhildur Gunnarsdóttir, símatími þriðjudaga og föstudaga milli kl. 9 og 10.

Kynning hefst þann  4. nóvember og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið  til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 2. desember 2009

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra
Gunnhildur Gunnarsdóttir