Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Gufunes, útivistarsvæði

Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.

Gufunes, útivistarsvæði

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Gufunes útivistarsvæði vegna skemmtigarðs. Í breytingunni felst m.a. að þjónustubygging fyrir skemmtigarð færist nær Gufunesvegi og byggingareitur er stækkaður. Bílastæðum á svæðinu er fjölgað og brennustæði færist örlítð vestar. Gervigrasvöllur og frjálsíþróttavöllur falla út í stað fjölnota grasflatar.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Deiliskipulagstillagan (PDF)

Skýringarmynd (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 11. nóvember 2009 til og með23. desember 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 23. desember 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

Reykjavík, 6. nóvember 2009.
Skipulagsstjóri Reykjavíkur