Sólvallagata 67
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Sólvallagötu 67 Vesturbæjarskóli.Í breytingunni felst m.a. að gert er ráð fyrir sparkvelli á suðvesturhluta lóðar á áður samþykktum sparkvelli. Fimm metra há girðing verður á tvo vegu að Hringbraut og Vesturvallagötu. Silfurreynir á lóð skal varðveita.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Deiliskipulagstillagan (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 18. nóvember 2009 til og með 4. janúar 2010. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 4. janúar 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 13. nóvember 2009 Skipulagsstjóri Reykjavíkur