Öskjuhlíð
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Öskjuhlíð vegna göngu og hjólastíga frá Nauthólsvík að Suðurhlíðum. Í breytingunni felst m.a. að gert er ráð fyrir aðskildum stofnstígum fyrir gangandi og hjólandi og liggja þeir að mestu samstíga, austast á svæðinu sameinast göngu- og hjólreiðastígur áningarstað.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Deiliskipulagstillagan (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 18. nóvember 2009 til og með 4. janúar 2010. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 4. janúar 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 13. nóvember 2009 Skipulagsstjóri Reykjavíkur