Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Kjalarnes, Melavellir

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir jörðina Melavellir á Kjalarnesi.Í breytingunni felst m.a. að gert er ráð fyrir að byggja fjögur alifuglahús sunnan við þegar samþykkt alifuglahús þannig að í heildina verði sex ný hús á lóðinni, mön verði reist sunnan og austan við ný alifuglahús, hæð þrír til fjórir metrar.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Deiliskipulagstillagan (PDF)

Umhverfisskýrsla (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 16. desember 2009 til og með 27. janúar 2010. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 27. janúar 2010. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.