Árvað 5
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Norðlingaholt vegna lóðarinnar nr. 5 við Árvað. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir staðsetningu boltagerðis á austurhluta lóðarinnar.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Deiliskipulagstillagan (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 16. desember 2009 til og með 27. janúar 2010. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 27. janúar 2010. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.