Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Haðaland 26

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð Fossvogsskóla, Haðaland 26.Í breytingunni felst að heimilt verði að staðsetja boltagerði á suðvesturhluta lóðar, byggingarreitur fyrir færanlegar stofur verði staðsettur á núverandi boltagerði og færslu og fækkun á bílastæðum.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna

Deiliskipulagstillagan (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 23. desember 2009 til og með 3. febrúar 2010.  Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.

 Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 3. febrúar 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.