Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Elliðaárdalur

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Elliðaárdal vegna lóða fyrir borholuhús. Í breytingunni felst m.a. að gert er ráð að setja inn lóðarmörk vegna tólf dæluhúsalóða Orkuveitu Reykjavíkur í landi Löngugrófar í Elliðaárdal.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna

Deiliskipulagstillagan (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 23. desember 2009 til og með 3. febrúar 2010.  Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.

 Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 3. febrúar 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.