Túnahverfi, deiliskipulag (Hagsmunaaðilakynning)
Til hagsmunaaðila á þremur götureitum, 1.221.3 og 1.221.4, sem markast af Samtúni, Nóatúni, Miðtúni og Höfðatúni, 1.223.0 og 1.223.1 sem markast af Miðtúni, Nóatúni, Hátúni og Höfðatúni og 1.235.0 og 1.2351 sem markast af Miðtúni, Hátúni og Nóatúni.
Í apríl 2009 var hagsmunaaðilum sent bréf til að upplýsa um að í bígerð væri að hefja vinnu við gerð deiliskipulags á ofangreindum reitum og var þeim gefinn kostur á að koma með ábendingar. Ráðgjafar og starfsmenn skipulagsstjóra hafa nú í samráði við skipulagsráð unnið að gerð tillögu að deiliskipulagi svæðisins.
Unnin hefur verið deiliskipulagstillaga að reitunum og hefur skipulagsráð falið skipulagsstjóra að kynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum.
Markmið deiliskipulagsins er að halda í byggðamynstrið og mælikvarðann sem fyrir er á svæðinu. Einnig er reynt að stuðla að hæfilegri endurnýjun og uppbyggingu á forsendum þeirrar byggðar sem fyrir er. Lagt er til að svæðið njóti svæðisverndunar. Einnig er lagt til að húsið að Hátúni 41 verði verndað í flokki 20. aldar bygginga.
Deiliskipulagstillagan 1 (PDF)
Deiliskipulagstillagan 2 (PDF)
Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri Reykjavíkur að Borgartúni 12-14, frá 6. janúar 2010 til 20. janúar 2010, kl. 8:20 -16:15 virka daga. Einnig er hægt að skoða tillöguna á heimasíðu skipulags- og byggingarsviðs www.skipbygg.is undir "mál í kynningu", "Túnin".
Á þessum tíma er hagsmunaaðilum gefinn kostur á að koma á framfæri skriflegum ábendingum, athugasemdum eða fyrirspurnum merktum: Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur, "Deiliskipulag Túna", Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða á netfangið: skipulag@rvk.is.
Ábendingar verða skoðaðar í deiliskipulagsvinnunni og eftir atvikum teknar inn í tillögu.
Ef einhverjar spurningar vakna er þeim góðfúslega svarað á símatíma mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10, eða í tölvupósti.
F.h. skipulagsstjóra
Margrét Þormar arkitekt