Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Lambhagaland

Tillaga að deiliskipulagi Lambhagalands við Vesturlandsveg.

Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir Lambhagareit og nær deiliskipulagssvæðið til alls 14,8 ha. Alls er um að ræða 8 lóðir sem í aðalskipulagi eru skilgreindar sem ræktunarlóðir (garðyrkja og skyld starfsemi). Lagt er til að sérstaða svæðisins varðveitist sem mest í borgarmyndinni enda rík hefð fyrir ræktun innan reitsins.
Markmiðið með tillögunni er að leggja fram heildstætt skipulag fyrir allar ræktunarlóðirnar þar sem gætt er samræmis varðandi mögulega landnotkun og byggingarmagn að teknu tilliti til mismunandi lóðastærða og aðstæðna innan hverrar lóðar. Búseta á lóðunum skal vera möguleg og því heimilt að byggja þar íbúðarhús. Áhersla er lögð á ræktun og grænt yfirbragð lóðanna og er því 1/3 hluti hverrar lóðar skilgreindur sem grænt svæði eða ræktunarsvæði.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Deiliskipulagstillagan (PDF)

Skýringaruppdráttur (PDF)

Tillagan liggjur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 13. janúar 2010 til og með 24. febrúar 2010.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.  Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 24. febrúar 2010.
Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.