Bakkagerði 6
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 18. desember 2009 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Teigagerðisreits vegna lóðarinnar nr. 6 við Bakkagerði. Í breytingunni felst stækkun á lóðréttum byggingarreit svo hækka megi rishæð alls hússins samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.
Deiliskipulagstillaga (PDF)
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Bakkagerði 4 og 8.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Þórarinn Þórarinsson símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10 alla virka daga.
Kynning hefst þann 15. janúar og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 12. febrúar nk.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Þórarinn Þórarinsson