Hamarshöfði 2
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 5. mars 2010 var lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða vegna lóðarinnar nr. 2 við Hamarshöfða. Í breytingunni felst að afmarkaður verði nýr byggingarreitur fyrir þegar reista byggingu sem ekki er samþykkt samkvæmt meðfylgjani uppdrætti Arkís ehf., dags. 26. febrúar 2010.
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Hamarshöfða 4.
Deiliskipulagstillagan: (PDF)
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Örn Þór Halldórsson. Símatími mánudaga og fimmtudaga milli 9 til 10.
Kynning hefst þann 11. mars og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 8. apríl nk.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Örn Þór Halldórsson