Túnahverfi
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir í Túnahverfi. Skipulagssvæðið afmarkast af staðgreinireitum 1.221.3 og 1.221.4, 1.223.0 og 1.223.1, 1.235.0 og 1.2351, Samtúni, Nóatúni, Miðtúni, Hátúni og Höfðatúni.
Markmiðið er að halda í byggðamynstur og mælikvarða sem fyrir er á svæðinu. Lagt er til að svæðið njóti hverfisverndunar samkv. Húsverndarskrá. Gert er ráð fyrir að byggja megi við flest hús á svæðinu ýmist með útbyggingum og/eða lyfta þaki. Allar breytingar eru háðar því skilyrði að þær falli vel að byggingastíl viðkomandi húss.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Deiliskipulagstillagan 1 (PDF)
Deiliskipulagstillagan 2 (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 16. apríl 2010 til og með 4. júní 2010.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 4. júni 2010. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.