Vísindagarðar
ATH: Ábendingafrestur framlengdur til 30. júní.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð Háskóla Íslands vegna Vísindagarða.Í breytingunni felst m.a. bygging á stúdentagörðum neðan við Oddagötu á 3 - 4 hæðum og Vísindagörðum á 4 - 5 hæðum austan megin Sæmundargötu á milli Eggertsgötu og Sturlugötu. Á torgi fyrir miðjum reit er tillaga að 7 hæða byggingu.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Deiliskipulagstillaga (PDF)
Greinargerð (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 21. apríl 2010 til og með 30. júní 2010.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 30. júni 2010.
Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.