Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Austurstræti 6

Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar tillögur að nýju og breyttu deiliskipulagi í Reykjavík.

Austurstræti 6

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar að Austurstræti 6. Í breytingunni felst að stækka húsið til suðurs og byggja kvisti báðum megin á rishæð.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Deiliskipulagstillagan: (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 5. maí 2010 til og með 16. júní 2010

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 16. júni 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

Skipulagsstjóri Reykjavíkur