Austurhöfn, THR
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Austurhöfn, TRH
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna gatna- og stígatengsla á svæðinu milli Hafnarstrætis og Tónlistar og ráðstefnuhúss og niðurfellingar á byggingareitum. Byggingarreitir 3 og 4 sem sýndir eru á uppdrætti eru felldir niður, gata suð-austur af byggingarreit 6 verður felld niður og stofnstígurmeðfram Kalkofnsvegi verður framlengdur út Geirsgötu en stofnstígur yfir torg TR út Austurbakka er felldur niður þar sem torgið í heild er m.a.ætlað gangandi og hjólandi vegfarendum.
Að- og frákeyrsla í bílahús í Tryggvagötu verður færð í Pósthússtræti. Tryggvagata austur af Pósthússtræti verður einbreið en var áður tvíbreið að inn- og útkeyrslu bílahúss. Stærð skipulagsreits breytist lítillega og stækkar um u.þ.b.1.700 m2 vegna niðurfellingar göngubrúar og bílastæða austast í Tryggvagötu.
Tillögur að verulegum breytingum á hönnun þessara svæða skulu lagðar fyrir skipulagsráð til samþykktar og staðfestingar í borgarráði sem breytingar á deiliskipulagi.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Deiliskipulagstillaga 1: (PDF)
Deiliskipulagstillaga 2 : (PDF)
Skýringarmynd 1: (PDF)
Skýringarmynd 2 : (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 12. maí 2010 til og með 24. júní 2010.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 24. júní 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 12. maí 2010Skipulagsstjóri Reykjavíkur