Fylkisvegur 6
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Fylkisvegur 6
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Íþróttasvæðis Fylkis við Fylkisveg. Í breytingunni felst breyting á fyrirkomulagi mannvirkja og færsla áhorfendastúku innan lóðarinnar.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Deiliskipulagstillagan: (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá21. maí 2010 til og með 2. júlí 2010. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is.Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 2. júlí 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 21. maí
2010Skipulagsstjóri Reykjavíkur