Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hlíðarendi, Valur

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi á lóð knattspyrnufélagsins Valsað Hlíðarenda. Svæðið afmarkast af legu Hringbrautar, Bústaðavegi, Flugvallarvegi og bráðabirgðavegi (Nauthólsvegi) en lega hans er breytt frá gildandi deiliskipulagi. Í breytingunni felst m.a. að gengið er út frá svo kölluðu reitakerfi, í takt við verðlaunatillögu Vatnsmýrar. Um era ð ræða þétta randbyggð og inngarða, sem hefur í för með sér nokkuð þéttara byggðarmynstur og annað gatnakerfi en gildandi tillaga gerir ráð fyrir.

Heildarbyggingarmagn eykst úr 85 000 m² í rúmlega 105 000 m² ofanjarðar. Húshæðir verða þrjár til fimmhæðirí stað tveggja til sjö hæða áður. Á jarðhæðum allra húsa er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi s.s. verslun, þjónustu og skrifstofurhúsnæði. Dregið er úr kröfu um fjölda bílastæða á lóðum og bílastæðum komið fyrir að stærstum hluta neðanjarðar. Lausnumferðar- og bílastæðamála er aðlöguð að hugmyndum að nýju umferðarkerfi Vatnsmýrarinnar og nýjum áherslum borgaryfirvalda fyrir gönguleiðir, hjólaleiðir og almenningssamgöngur.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Skoða tillögu (PDF) 
Skýringaruppdráttur (PDF) 
Greinargerð (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 9. júní 2010 til og með 22. júlí 2010. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 22. júlí 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

Reykjavík 9. júní 2010
Skipulagsstjóri Reykjavíkur