Klettháls 7
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 16. júní 2010 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Klettháls vegna lóðarinnar nr. 7 við Klettháls. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti Funkis arkitekta dags. 6. júní 2010. Tillagan er einnig á heimasíðu sviðsins skipbygg.is undir auglýsingar, skipulag í kynningu.
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Deiliskipulagstillagan: (PDF)
Húseigendum að Kletthálsi 5 og 9.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Lilja Grétarsdóttir, símatími 9 - 10 mánudaga og fimmtudaga.
Kynning hefst þann 25. júní nk. og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 23. júlí 2010.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Lilja Grétarsdóttir