Austurhöfn, THR
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Austurhöfn, TRH
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna gatna- og stígatengsla á svæðinu milli Hafnarstrætis og Tónlistar- og ráðstefnuhúss ásamt niðurfellingum á byggingareitum. Einnig er umhverfisskýrsla lögð fram til kynningar.
Byggingareitir 3 og 4 sem sýndir eru á uppdrætti eru felldir niður, gata suð-austur af byggingareit 6 verður felld niður og stofnstígur meðfram Kalkofnsvegi veður framlengdur út Geirsgötu en stofnstígur yfir torg TRH út Austurbakka er felldur niður þar sem torgið í heild er m.a. ætlað gangandi og hjólandi vegfarendum.. Að- og frákeyrsla í bílahús í Tryggvagötu verður færð í Pósthússtræti. Tryggvagata austur af Póstuhússtræti verður einbreið en var áður tvíbreið að inn- og útkeyrslu bílahúss. Stærð skipulagsreits breytist lítillega og stækkar um u.þ.b. 1.700 m² vegna niðurfellingar göngubrúar og bílastæða austast í Tryggvagötu.
Tillögur að verulegum breytingum á hönnun þessara svæða skulu lagðar fyrir skipulagsráð til samþykktar og staðfestingar í borgarráði sem breytingar á deiliskipulagi.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Deiliskipulagstillagan: (PDF)
Sneiðingar (PDF)
Skýringaruppdráttur 1 (PDF)
Skýringaruppdráttur 2 (PDF)
Umhverfisskýrsla (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 17 júlí 2010 til og með 27. ágúst 2010. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 27. ágúst 2010. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 16. júlí 2010Skipulagsstjóri Reykjavíkur