Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Njálsgötureitur

ATH: Athugasemdafrestur framlengdur til 1. okóber 2010.

Tillaga að deililskipulagi fyrir Njálsgötureit 3, staðgreinir 1.190.3, sem afmarkast afNjálsgötu, Barónsstíg, Bergþórugötu og Vitastíg.

Markmið með deiliskipulagstillögunni er að stuðla að hæfilegri uppbyggingu og endurnýjun á reitnum, en um leið hlúa að því sem fyrir er og búa þannig um hnútana að uppbygging geti gerst á forsendum þeirra byggðar sem þar stendur. Einnig er verið að stuðla að endurnýjun húsakosts á reitnum og gefa lóðareigendum kost á að byggja við og bæta núverandi eignir sínar eða reisa þar nýbyggingar. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Skoða tillögu (PDF)

Tillaganr liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 28. júlí 2010 til og með 1. október 2010

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 1. október 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.

Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.