Borgartún 32
Tillaga að breytingu á skilmálum í deiliskipulagi lóðarinnar númer 32 við Borgartún. Í breytingunni felst að bílastæðakröfum fyrir lóðina er breytt þannig að 50 bílastæði verða ofanjarðar. Heimild þessi er bundin við að hótelið sé gistihótel. Fyrri skilmálar um 90 bílastæði á lóð taka aftur gildi við breytingu á starfsemi í byggingunni. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Skoða tillögu (PDF)
Tillaganr liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 28. júlí 2010 til og með 9. September 2010. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 9. september 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.