Hólmsheiði
Tillaga að nýju deiliskipulagi á Hólmsheiði sem felur í sér heimild til losunar á ómenguðum jarðvegi til ársins 2020. Stærð losunarsvæðisins er um 32 ha.Athygli hagsmunaaðila er sérstaklega vakin á því að í tillögunni er gert ráð fyrir nýrri afmörkun á skipulagssvæðinu. Það er gert í ljósi þess að ekki er tímabært að ákvarða endanlega legu fyrirhugaðrar tengibrautar yfir Hólmsheiði og aðlögun að landi. Skipulagssvæðið hefur nú verið minnkað töluvert og nær nú eingöngu til jarðvegsfyllingarinnar og miðlunargeyma á Hólmsheiði. Í tillögunni er jafnframt gert ráð fyrir því að gildandi deiliskipulag á Hólmsheiði sem tók gildi 7. apríl 2010 og deiliskipulag fyrir miðlunargeyma á Hólmsheiði sem tók gildi 30. febrúar 2008, falli úr gildi við samþykkt tillögunnar.Skipulagsskilmálar fyrir miðlunargeyma eru nú felldir inn í tillöguna en gert er ráð fyrir allt að fimm miðlunargeymum á svæðinu ásamt dælustöð og stýrihúsi.Gert er ráð fyrir að svæðið undir jarðvegsfyllinguna verði ræktað upp og það lagað að núverandi landi og verði hluti af útivistarsvæðinu á Hólmsheiði eftir árið 2020.Losun jarðefna fellur ekki undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Skoða tillögu (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 11. ágúst 2010 til og með 22. september 2010. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 22. september 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.