Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Heiðmörk

Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Heiðmörk ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu. Markmið með gerð deiliskipulagsins eru margþætt og eiga að tryggja samræmingu landnotkunar innan svæðisins til að forðast hagsmunaárekstra milli núverandi og framtíðar landnotkunar á svæðinu.

Helstu markmið eru:
·Afmarka og skilgreina svæði eftir nýtingu þeirra og/eða verndun þ.e. vatnsverndarsvæði, útivistarsvæði og skógræktarsvæði.
·Skapa fjölbreytt og aðgengilegt ústivistarsvæði fyrir alla aldurshópa.
·Ákvarða og skilgreina legu helstu vegtenginga og göngu-, hjóla- og reiðleiða um svæðið. Styrkja tengingu byggðar við útivistarsvæði.
·Styrkja samspil og tengingu Heiðmerkur við aðliggjandi útivistarsvæði.
·Tengja nærumhverfi Elliðavatnsbæjarins annarri starfsemi á svæðinuog styrkja Elliðavatnsbæ sem þjónustu- og fræðslumiðstöð fyrir Heiðmörk.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna

Skoða tillögu (PDF)
Greinargerð (PDF)
Umhverfisskýrsla (PDF)
Skýringarmyndir (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 11. ágúst 2010 til og með 22. september 2010. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 22. september 2010.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.