Skúlagata 4
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Stjórnarráðsreits, Skúlagötusvæðis, vegna lóðarinnar að Skúlagötu 4. Í breytingunni felst m.a. að byggð er ein hæð ofan á skrifstofuálmu til suðurs. Viðbótar byggingarmagn á Skúlagötu 4 verður 302 m². Bílastæði á lóð eru þrjú ásamt tveimur við Skúlagötu sem merkt eru starfsmönnum. Að öðru leyti gildir heildarskipulag svæðis með síðari breytingum.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Deiliskipulagstillagan: (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 8. september 2010 til og með 20. október 2010.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 20. október 2010. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík 8. september 2010
Skipulagsstjóri Reykjavíkur