Klettasvæði, Skarfabakki
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis/Skarfabakka vegna lóðanna við Korngarða 1-3 ogKlettagarða 4. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar við Klettagarða nr. 4 til austurs, skipting á lóðinni nr. 1-3 við Korngarða í tvær lóðir, lengja Skarfabakka um 200 metra með landfyllingu ásamt því að sjóvarnargarðurinn Ábóti er fjarlægður. Einnig er lagðar fram til kynningar umhverfisskýrsla og matslýsing. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Skoða tillögu (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 9. nóvember 2011 til og með 21. desember 2011. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is.Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 21. desember 2011. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.