Sóltún 2-4
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna lóðarinnar Sóltún 2 og 4. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni og fjölda hjúkrunarrýma, breyting á formi byggingareits ásamt breytingu á bílastæðaskilmálum . Lagt er fram skuggavarp sem einnig er kynnt ásamt uppdráttum. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Skoða tillögu (PDF)
Skuggavarp (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 23. nóvember 2011 til og með 5. janúar 2012. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is.Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 5. janúar 2012. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.