Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Ísleifsgata 2-34

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsás vegna lóðanna nr. 2-34 við Ísleifsgötu. Í breytingunni felst fjölgun og smækkun íbúða. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Skoða tillögu (PDF)

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 27. janúar 2012 til og með 9. mars 2012. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 9. mars 2012. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.