Laugavegur 33-35 og Vatnsstígur 4
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.172.1, sem afmarkast af Laugavegi, Frakkastíg, Hverfisgötu og Vatnsstíg vegna lóðanna að Laugavegi 33-35 og Vatnsstígur 4.
Tillagan gerir ráð fyrir að öll efsta hæð fjögurra hæða byggingar sédregin inn um 2 metra og að byggja alls 4260 m2.. Nýtingarhlutfall verður 3.5.Í tillögu er einnig gert ráð fyrir að byggja bílakjallara undir verslunarrými og með þeim hætti auka nýtingu undir verslanir/þjónustu á þeirri hæð sem er að fullu niðurgrafin við Laugaveg en á jarðhæð við þær byggingar sem nú standa að Laugavegi 33B og Vatnstíg 4. Heildarnýtingahlutfall að meðtöldum kjöllurum er því allt að 5,2
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Skoða tillögu (PDF)
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 2. maí 2007 til og með 13. júní 2007. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 13. júní 2007. Vinsamlega nota uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 2. maí 2007
Skipulagsstjóri Reykjavíkur