Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Tryggvagata 19

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.118.3 Kvosina vegna lóðarinnar að Tryggvagötu 19.

Tillagan gerir ráð fyrir að aðkoma verði frá Naustum á miðju húsi og er gert ráð fyrir bílageymslu á annarri og þriðju hæð. Akstursbraut inni í húsinu verður framlengd. Á fjórðu og fimmtu hæð er leyfð hækkun á húsi í suður og verða þessar hæðir nýttar sem skrifstofuhúsnæði. Hluti af þaki þriðju hæðar er nýttur fyrir bílastæði

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Skoða tillögu ( PDF )

Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 4. júlí 2007 til og með 15. ágúst 2007. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 15. ágúst 2007.

Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.

Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.