Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Stakkholt 2 – 4 og 3.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hampiðjureits vegna lóða við Stakkholt 2-4 og 3.

Gert er ráð fyrir íbúðum á öllum hæðum en ekki verður skilyrði um verslun og þjónustu á jarðhæð eins og í gildandi deiliskipulagi. Bygging við Brautarholt og Stórholt er hækkuð um eina hæð og kjallarahæð. Byggingarreitur er grynnkaður: Byggja má stigahús ofl út fyrir byggingarreit. Byggingar á baklóð (næst Laugavegslóðum) verða fjórar hæðir, en neðsta hæðin telst vera kjallari þar sem hún er niðurgrafin að hluta. Í gildandi deiliskipulagi er þessi bygging brotin meira upp. Byggingarreitir fyrir bílageymslur /kjallara eru sameinaðir.

Flái verður á vestasta hluta Stakkholts . Það er gert til að tengja betur gönguleiðir og jafna út hæðamismun.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Skoða tillögu ( PDF )

Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 2. janúar 2007 til og með 21. febrúar 2008.  Frestur var framlengdur til 21. febrúar. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 21. febrúar 2008.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.

Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

 

Reykjavík, 21. desember 2007 Skipulagsstjóri Reykjavíkur