Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hólmsheiði, Fisfélag Reykjavíkur

Tillaga að nýju deiliskipulagi í Hólmsheiði vegna aðstöðu fyrir Fisfélag Reykjavíkur ásamt nýrri afmörkun svæðis fyrir starfsemina.

Tillagan gerir ráð fyrir að svæði á Hólmsheiði sem er um 350 metrum sunnan við Langavatn verði afmarkaðar lóðir merktar, a, b og c á deiliskipulagstillögu, fyrir starfsemi Fisfélags Reykjavíkur. Svæðinu er úthlutað tímabundið til félagsins. Á svæði A er heimilt að reisa flugskýli og leggja malarborin bílastæði, á svæði B er gert ráð fyrir 2-3 flug- og æfingabrautum fyrir fis og á svæði C er gert ráð fyrir félagsaðstöðu og útivistarsvæði fyrir félagsmenn. Starfsemi samræmist landnotkun svæðisins samkv. Aðalskipulagi.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Skoða tillögu ( PDF)

Tillagan liggur  frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 13. febrúar 2007 til og með 28. mars 2008. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna  skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 28. mars 2008.Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.

Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

  

Reykjavík, 13. febrúar 2008 Skipulagsstjóri Reykjavíkur