Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Háaleitisbraut 19

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 9. maí 2008 var lögð fram umsókn Einrúm arkitekta f.h Birnu Sigurðardóttur, dags. 3. mars 2008, um breytt deiliskipulag lóðar nr. 19 við Háaleitisbraut skv. uppdrætti, dags. 14. febrúar 2008. Breytingin felst í því að bætt verður við byggingarreit fyrir bílskúr á lóð.

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Háaleitisbraut 15, 17, 21 og 29-35 (ójöfn númer).

Skoða tillögu ( PDF)

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Tillagan verður til kynningar í sal Skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 08:20-16:15 og á heimasíðu sviðsins skipbygg.is undir mál í kynningu.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Skipulags- og byggingarsviðs, Borgartúni 3, 3. hæð, arkitekt austurteymis er Gunnhildur Gunnarsdóttir. Símatími 9-10 alla virka daga.

Kynning hefst þann 15. maí og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 12. júní nk.

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Gunnhildur Gunnarsdóttir