Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Borgartún

Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar

Unnið hefur verið að deiliskipulagstillögu á vegum Hornsteina arkitekta. Sú tillaga liggur nú fyrir og verður hún í kynningu frá 21. október til 4. nóvember 2008. Meðfylgjandi eru smækkaðir uppdrættir. Einnig er hægt að kynna sér uppdrættina á slóðinni www.skipbygg.is, þar er linkur á Borgartún. Einnig má sjá uppdrætti í fullri stærð í þjónustuveri  1. hæð í Borgartúni 12-14. 

Forsaga deiliskipulagsvinnunnar er sú að Skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti í október á síðasta ári, forsögn að deiliskipulagi svæðisins þ.e. vegna lóða norðan megin Borgartúnsins. Yfirlýst markmið þessarar vinnu er að fegra og stórbæta götumyndina og yfirbragð svæðisins með þátttöku eigenda eigna og leigjenda á reitnum. Stefnt er að því að gefa hagsmunaaðilum kost á uppbyggingu á lóðum sínum með þeim skilyrðum að bílastæðum verði komið fyrir neðanjarðar og lóðarhafar stuðli að fegrun svæðisins m.a. með grænum svæðum og gönguleiðum.

Deiliskipulagsuppdráttur, núverandi ástand  (PDF).

Deilliskipulagsuppdráttur, ásýndir (PDF)

Deiliskipulagsuppdráttur tillaga (PDF)

Tveir kynningarfundir hafa verið haldnir með hagsmunaaðilum, annar þeirra var haldinn þann 8. maí á Grand Hótel og hinn var haldinn þann 23. júní á sama stað.

Eigendur eru hvattir til að kynna sér gögnin og koma með ábendingar og hugmyndir inn í deiliskipulagsvinnuna.

Ábendingum og hugmyndum skal skila inn skriflega til Skipulags-og byggingarsviðs Reykjavíkur Höfðatorgi 10-12, fyrir 4. nóvember n.k. 

Einnig er hægt að hafa samband við undirritaða síma 4113000 mánudaga og fimmtudaga milli 9 og 10 eða senda tölvupóst á margret.leifsdottir@reykjavik.is og skipulag@reykjavik.is

 F.h. Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar

Margrét Leifsdóttir, arkitekt
verkefnisstjóri.