Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hólmsheiði - tímabundin aðstaða fyrir fisflug

Við kafla 3.2. bætist við nýr kafli 3.2.3. Landnotkun í Hólmsheiði 2001-2024 og skýringarmynd, 10. mynd. Eftirfarandi texti verður í kaflanum: Hólmsheiðin er skilgreind sem opið svæði til sérstakra nota. Markmið aðalskipulagsins er að byggja svæðið upp sem útivistarsvæði, m.a. með skógrækt (S). Á afmörkuðum svæðum í Hólmsheiði er gert ráð fyrir frístundaiðju, sbr. ákvæði um opin svæði til sérstakra nota. Meðal annars er gert ráð fyrir tímabundinni aðstöðu fyrir fisflugi, túni til lendingar og annarri aðstöðu á melum sunnan Langavatns. Stígur norðan hitaveitulagnar, til norðurs vestan Langavatns, breytist úr reiðstíg í stofnstíg. Reiðstígur, til vesturs, við vesturenda Langavatns er felldur út.

Nánar um tillögu vísast til kynningargagna

Aðalskipulagstillagan (PDF)

Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 8. maí 2009 til og með 6.júlí 2009.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 22. júní 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.

Skipulagsstjóri Reykjavíkur