Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Langholtsvegur 115

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 11. september 2009 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Langholtsvegar-Drekavogs vegna lóðar nr. 115 við Langholtsveg. Breytingin gengur út á byggingu svalaskýlis sem hækkar nýtingarhlutfall úr 0,96 í 1,00.

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Langholtsvegi 109, 111, 113, Drekavogi 4, 4a og 4b ásamt Sigluvogi 16.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Deiliskipulagstillagan (PDF)

Tillagan verður einnig til kynningar í sal Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14, 1. hæð, opið kl. 08:20-16:15.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Gunnhildur Gunnarsdóttir. Símatími 9- 10 þriðjudaga og föstudaga.

Kynning hefst þann 16. sept. nk og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 14. október 2009.

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Gunnhildur Gunnarsdóttir