Lambhóll við Þormóðsstaðaveg
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 11. september 2009 var lögð fram tillaga að nýrri lóðaafmörkun dags. 11. september 2009 fyrir Lambhól við Þormóðsstaðaveg.
Eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Lambhól við Þormóðsstaðaveg.
Deiliskipulagstillagan (PDF)
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Guðfinna Ó. Erlingsdóttir. Símatími er 9-10 þriðjudaga og föstudaga.
Kynning hefst þann 16. sept. nk og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 14. okt. 2009.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Guðfinna Ósk Erlingsdóttir